20. nóvember 2006 klukkan 22:23
að ég er ekki búin að vera dugleg að blogga. Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér síðustu vikur. ÖÖÖÖÖÖ hvar á ég að byrja????

Við Gunni fórum á uppskeruhátíð hestamanna á Broodway, sem að var mjög skemmtilegt, maturinn var svona lala, en ballið var hins vegar mjög skemmtilegt. Í svörtum fötum var að spila sem var bara gaman. En áður en það byrjaði þá komu Stebbi og Eyfi og tóku nokkur lög þar á meðal lagið Góða ferð. O.M.G. hvað ég er búin að fá nóg af því lagi. Og svo ér ég búin að vera í skólanum að læra bókfærslu, mjög skemmtilegt;/ og vinna og vinna. Var einmitt að vinna um síðustu helgi þannig að það er lítill tími til að vera að blogga.
En heyðu þið í fréttunum af manninum sem sat fastur í skafli, spólaði eins og brjálaður maður

þangað til að KIKKNAÐI í bílnum hans

Og ekki nóg með það heldur kvikknaði í bíl sem stóð rétt hjá. En HALLÓ hættum að reyna að losa okkur áður er það kvikknar í bílnum okkar!
En nóg í bili. Reyni að vera duglegri að bulla eitthvað hér á næstunni.